Monday, July 4, 2011

3.Júlí

Hellú,

Ég er enn á lífi :)  Búin að tana, fara í bíó, casino og nokkrar búðir.  Mikið rosalega er nú gaman að búa með svona mörgum.  Okkur kemur öllum svo vel saman, ekkert vesen, bara eins og ein stór fjölskylda.

Við Tinna löbbuðum áðan í búðina og svo í 7-11að kaupa bjór og kaffi.  Þar sáum við gaur með páfagauk á öxlinni, bara fyndið.
Á leiðinni heim byrjuðu þrumur og eldingar.  Shitt hvað við vorum hræddar, þetta er ekkert eins og heima og við ný búnar að lesa um 29 sem dóu þegar þau fengu eldingu í sig.  Við vorum farnar að hlaupa með vörurnar hahahaha.  Þar fyrir utan löbbuðum við framhjá þremur rónum og svo stoppaði einn kall og starði á okkur, ekki alveg það sem manni langar þegar enginn karlmaður er með í för hehe :)

Við Tinna verðum svo einar í kvöld og huggum hvor aðra í veðrinu híhí.

Annars er allt gott að frétta af okkur, bara stuð og hamingja :)

Kveðja
Krissa