Þá er vika 4 að ganga í garð. Það hefur gengið svakalega vel hjá mér, enda er ég alveg komin í svipaðann gír og ég var í þegar ég byrjaði í danska hér áður fyrr.
3.5 kíló farin á tæpum 3 vikum, ég er svakalega glöð með það. Heil 7 kíló farin frá því í sumar, var ekkert svakaleg alvara í þeirri megrun en eitthvað fór samt af mér ;)
Sykurstjórnunin gengur svakalega vel, ég er alltaf að testa hvað ég má og hvað ég má ekki. Það er bara allt í blússandi gleði hér á þessum bæ. Hlakka svo svakalega til að fá Danna til mín í apríl, svo líður að því að maður plani sumarið, jebb allt að gerast ;)
Kveðja Krissulingur
Sunday, January 22, 2012
Sunday, January 15, 2012
Sunnó
Kósý dagur í dag. Sökti mér í bókina Feigð eftir Stefán Mána, svakalega skemmtileg bók. Í lestrarpásum hentist ég í þvottahúsið og inn í eldhús að elda. Er núna að sinna tölvuskyldum áður en ég læði mér aftur undir sæng að lesa :)
Mataræðið hefur gengið vel í dag. Ég er reyndar búin að ákveða að fá mér smá popp og pepsí í kvöld. Held að það komi ekki að sök hehe.
Ætla að gera tilraun á morgun, gá hvort ég þoli burger hrökk kex.
Cya hómí

Saturday, January 14, 2012
Helgarnar
Ég verð alveg að viðurkenna það að mér þykja helgarnar mjög erfiðar. Margt sem mig langar í sem er kannski ekki svo óhollt, en fyrir mig er það ekki hollt. Ég er með sykursýki 2 sem var að sjálfsögðu úr sögunni áður en ég fitnaði aftur, en ég hef hemil á henni ef ég sleppi mjólkurvörum, brauði, osti, pasta og þessháttar, þarf ekki að benda á það augljósa að ég sneiði auðvitað framhjá sykri ;) Ég fæ mér líka takmarkað af ávöxtum, en þetta er bara rétt á meðan ég skef af mér fituna, mér finnst svo mikilvægt að hafa stjórn á blóðsykrinum. Ég kom mér í þetta !!
Ég er mikið að pæla í að byrja aftur í bodypump, það er reyndar ekki eins gaman að vera einn að vesenast þetta, en ég reyndar fór alltaf ein á sínum tíma. Ætla að leggjast yfir þetta og hugsa málið.
Annars leggst það vel í mig að byrja aftur í danska, hakka til að losa mig við fitupúkann ;)

Ég vil! ég get! ég skal!
Krissa feitabolla mætt á svæðið
Jæja þá hefst baráttan aftur. Ég var á danska fyrir nokkrum árum og missti 35 kíló. Það hafa nokkuð mörg kíló læðst á mig aftur og nú er nóg komið. Ég bloggaði þegar ég var í danska á þeim tíma og ákvað að gera það líka núna.
Ég er mjög bjartsýn á að þetta takist hjá mér, alveg sorglegt að blása aftur út, ég sem sagðist aldrei ætla að láta þetta gerast og svo læddust kílóinn á mig á meðan ég lokaði augunum. Hingað og ekki lengra, nú hefst gamanið.
Subscribe to:
Posts (Atom)