Þá er vika 4 að ganga í garð. Það hefur gengið svakalega vel hjá mér, enda er ég alveg komin í svipaðann gír og ég var í þegar ég byrjaði í danska hér áður fyrr.
3.5 kíló farin á tæpum 3 vikum, ég er svakalega glöð með það. Heil 7 kíló farin frá því í sumar, var ekkert svakaleg alvara í þeirri megrun en eitthvað fór samt af mér ;)
Sykurstjórnunin gengur svakalega vel, ég er alltaf að testa hvað ég má og hvað ég má ekki. Það er bara allt í blússandi gleði hér á þessum bæ. Hlakka svo svakalega til að fá Danna til mín í apríl, svo líður að því að maður plani sumarið, jebb allt að gerast ;)
Kveðja Krissulingur
Út með fitupúkann
Sunday, January 22, 2012
Sunday, January 15, 2012
Sunnó
Kósý dagur í dag. Sökti mér í bókina Feigð eftir Stefán Mána, svakalega skemmtileg bók. Í lestrarpásum hentist ég í þvottahúsið og inn í eldhús að elda. Er núna að sinna tölvuskyldum áður en ég læði mér aftur undir sæng að lesa :)
Mataræðið hefur gengið vel í dag. Ég er reyndar búin að ákveða að fá mér smá popp og pepsí í kvöld. Held að það komi ekki að sök hehe.
Ætla að gera tilraun á morgun, gá hvort ég þoli burger hrökk kex.
Cya hómí

Saturday, January 14, 2012
Helgarnar
Ég verð alveg að viðurkenna það að mér þykja helgarnar mjög erfiðar. Margt sem mig langar í sem er kannski ekki svo óhollt, en fyrir mig er það ekki hollt. Ég er með sykursýki 2 sem var að sjálfsögðu úr sögunni áður en ég fitnaði aftur, en ég hef hemil á henni ef ég sleppi mjólkurvörum, brauði, osti, pasta og þessháttar, þarf ekki að benda á það augljósa að ég sneiði auðvitað framhjá sykri ;) Ég fæ mér líka takmarkað af ávöxtum, en þetta er bara rétt á meðan ég skef af mér fituna, mér finnst svo mikilvægt að hafa stjórn á blóðsykrinum. Ég kom mér í þetta !!
Ég er mikið að pæla í að byrja aftur í bodypump, það er reyndar ekki eins gaman að vera einn að vesenast þetta, en ég reyndar fór alltaf ein á sínum tíma. Ætla að leggjast yfir þetta og hugsa málið.
Annars leggst það vel í mig að byrja aftur í danska, hakka til að losa mig við fitupúkann ;)

Ég vil! ég get! ég skal!
Krissa feitabolla mætt á svæðið
Jæja þá hefst baráttan aftur. Ég var á danska fyrir nokkrum árum og missti 35 kíló. Það hafa nokkuð mörg kíló læðst á mig aftur og nú er nóg komið. Ég bloggaði þegar ég var í danska á þeim tíma og ákvað að gera það líka núna.
Ég er mjög bjartsýn á að þetta takist hjá mér, alveg sorglegt að blása aftur út, ég sem sagðist aldrei ætla að láta þetta gerast og svo læddust kílóinn á mig á meðan ég lokaði augunum. Hingað og ekki lengra, nú hefst gamanið.
Monday, July 4, 2011
3.Júlí
Hellú,
Ég er enn á lífi :) Búin að tana, fara í bíó, casino og nokkrar búðir. Mikið rosalega er nú gaman að búa með svona mörgum. Okkur kemur öllum svo vel saman, ekkert vesen, bara eins og ein stór fjölskylda.
Við Tinna löbbuðum áðan í búðina og svo í 7-11að kaupa bjór og kaffi. Þar sáum við gaur með páfagauk á öxlinni, bara fyndið.
Á leiðinni heim byrjuðu þrumur og eldingar. Shitt hvað við vorum hræddar, þetta er ekkert eins og heima og við ný búnar að lesa um 29 sem dóu þegar þau fengu eldingu í sig. Við vorum farnar að hlaupa með vörurnar hahahaha. Þar fyrir utan löbbuðum við framhjá þremur rónum og svo stoppaði einn kall og starði á okkur, ekki alveg það sem manni langar þegar enginn karlmaður er með í för hehe :)
Við Tinna verðum svo einar í kvöld og huggum hvor aðra í veðrinu híhí.
Annars er allt gott að frétta af okkur, bara stuð og hamingja :)
Kveðja
Krissa
Tuesday, June 28, 2011
Vegas
Þá er ég komin til Vegas baby. Ég er búin að vera hér í 3 daga og er enn að snúa sólarhringnum við.
Ferðalagið gekk vel, en var svakalega langt. Við Steini hittum alla sem eru með okkur í húsinu á leifsstöð sem var ferlega fínt, gott að vera búin að sjá liðið og knúsa það aðeins. Við vorum samt ekki í sama flugi, þau flugu til New york en við til Boston. Vorum samt búin að mæla okkur mót á flugvellinum í Vegas og taka saman leigubíl í höllina, fyrir utan 2 sem voru lengur á leiðinni en við hin.
Klukkan 11:00 fórum við í flugvélina og vorum lent í Boston ca 16:00(12 að hádegi í Boston). Þar tók við um 6 tíma bið á flugvellinum, kl 22:00(18:00) var farið í loftið og flogið í 5 og hálfann tíma, við græddum hálftíma út af meðvindi. Þá er klukkan orðin 4:30 á Íslandi o þeir voru en bara 21:30 í Vegas.
Þegar við komum í húsið tókum við göngutúr til þess að finna matvörubúð og svo tók við biðin endalausa eftir strákunum tveim sem voru ókomnir. Þeirra flug seinkaði svo þeir voru ekki komnir fyrr en rúmlega 2 um nóttina og þá er klukkan orðin 9 heima og við búin að vaka í rúman sólahring. Mikið var nú gott að skríða upp í king size rúmið og sofna

Wednesday, June 22, 2011
18, 19, 20, 21 og 22
Við erum ekki búin að gera neitt sérstak þessa dagana, bara chilla og njóta lífsins. Danni er aðeins búinn að vera að vinna, en gefur sér að sjálfsögðu tíma fyrir litlu frænkur sínar :) Hann sótti vin sinn á flugvöllinn í gær, hann ætlar að vera hjá honum í mánuð og vinna hjá honum. Þegar þeir komu af flugvellinum fóru þeir með stelpurnar að veiða, á meðan marineraði ég kjötið, gerði heitt grænmeti og ferskt og svo var grillað.
Ég fékk góða dóma frá kokkunum tveim, sem er sko alls ekki amalegt að fá :)
Á morgun, eða réttara sagt í nótt hefjum við ferðalagið heim.
Vöknum kl 2:30 og fáum okkur í gogginn. Kveðjum lillann minn og yndislegu Susanne og keyrum svo í 3 og hálfan tíma til Kristiansand og tökum ferjuna til Hirtshals sem er í Danmörku og keyrum þaðan í ca 5 tíma til Köben, skilum bílnum og förum í flug.
Þegar heim er komið fáum við einn dag til að arensera öllu fyrir vegas og svo erum við farin aftur um morgunin þaðnn 25. júní.
Kveðja
Ferðalangarnir

Subscribe to:
Posts (Atom)