Tuesday, June 28, 2011

Vegas

Þá er ég komin til Vegas baby.  Ég er búin að vera hér í 3 daga og er enn að snúa sólarhringnum við.

Ferðalagið gekk vel, en var svakalega langt.  Við Steini hittum alla sem eru með okkur í húsinu á leifsstöð sem var ferlega fínt, gott að vera búin að sjá liðið og knúsa það aðeins.  Við vorum samt ekki í sama flugi, þau flugu til New york en við til Boston.  Vorum samt búin að mæla okkur mót á flugvellinum í Vegas og taka saman leigubíl í höllina, fyrir utan 2 sem voru lengur á leiðinni en við hin.

Klukkan 11:00 fórum við í flugvélina og vorum lent í Boston ca 16:00(12 að hádegi í Boston).  Þar tók við um 6 tíma bið á flugvellinum, kl 22:00(18:00)  var farið í loftið og flogið í 5 og hálfann tíma, við græddum hálftíma út af meðvindi.  Þá er klukkan orðin 4:30 á Íslandi o þeir voru en bara 21:30 í Vegas.

Þegar við komum í húsið tókum við göngutúr til þess að finna matvörubúð og svo tók við biðin endalausa eftir strákunum tveim sem voru ókomnir.  Þeirra flug seinkaði svo þeir voru ekki komnir fyrr en rúmlega 2 um nóttina og þá er klukkan orðin 9 heima og við búin að vaka í rúman sólahring.  Mikið var nú gott að skríða upp í king size rúmið og sofna

Kveðja
Krissa

Wednesday, June 22, 2011

18, 19, 20, 21 og 22

Við erum ekki búin að gera neitt sérstak þessa dagana, bara chilla og njóta lífsins.  Danni er aðeins búinn að vera að vinna, en gefur sér að sjálfsögðu tíma fyrir litlu frænkur sínar :)  Hann sótti vin sinn á flugvöllinn í gær, hann ætlar að vera hjá honum í mánuð og vinna hjá honum.  Þegar þeir komu af flugvellinum fóru þeir með stelpurnar að veiða, á meðan marineraði ég kjötið, gerði heitt grænmeti og ferskt og svo var grillað.
Ég fékk góða dóma frá kokkunum tveim, sem er sko alls ekki amalegt að fá :)

Á morgun, eða réttara sagt í nótt hefjum við ferðalagið heim.
Vöknum kl 2:30 og fáum okkur í gogginn.  Kveðjum lillann minn og yndislegu Susanne og keyrum svo í 3 og hálfan tíma til Kristiansand og tökum ferjuna til Hirtshals sem er í Danmörku og keyrum þaðan í ca 5 tíma til Köben, skilum bílnum og förum í flug.

Þegar heim er komið fáum við einn dag til að arensera öllu fyrir vegas og svo erum við farin aftur um morgunin þaðnn 25. júní.

Kveðja
Ferðalangarnir

Friday, June 17, 2011

15, 16 og 17 júní.

15. júní
Við fórum aðeins í bæinn að skoða okkur um, löbbuðum "laugarveginn".  Við hittum akkúrat á Sandnes hátið þar sem fullt af þroskaheftu fólki var að spila í lúðrasveit.  Það var svaklega gaman að horfa á, svo svakalega brosmilt fólk, en ég get ekki sagt að lúðrasveitin hafi spilað eitthvað eyrnakonfekt hehehe, bara yndisleg.
Sóley Sif gaf betlarakonu pening, hún gat ekki hugsað sér að labba framhjá svona greyi ;)

Í kvöldmatinn fengum við okkur mexíkósku súpuna hennar mömmu sín ;) Svo bara chill.

16. júní
Við ákváðum að færa til þjóðhátíðardaginn okkar yfir á 16. þetta árið út af veðurspánni.  Við fórum með stelpurnar í Kongeparken þar sem allir djöfluðust í tækjunum nema hræðslupúkinn ég.
Við tókum með nesti sem var búið til í vinnunni hans Danna, hann hringdi eitt símtal og bað um að láta búa til 7 kjúklingasamlokur fyrir sig hehehehe, ekki slæmt að vera yfirkokkur :)

Í kvöldmatin fengum við okkur afganginn af súpunni góðu, nammi namm og svo tók við spilakvöld.

17.júní
Erum ekki búin að gera neitt í dag, nema að fara í búðina að kaupa í matinn.  Ætlum að chilla og hafa það kósý í dag og í kvöld, svo fer Danni að vinna í fyrramálið.

Í kvöldmatinn verður pasta, læt ykkur vita á morgun hvernig það bragðaðist :)

Kveðja
Ferðalangarnir

Tuesday, June 14, 2011

14. Júní

Annar nettur dagur.  Stauluðumst frammúr upp úr hádegi, fengum okkur í gogginn og strákarni léku sér aðeins í ps3.  Fórum svo að skoða stærsta moll í Noregi, versla inn í matinn og svo aftur heim.

Danni eldaði handa okkur hjört sem var alveg geggjaður jömmí jömmí.  Erum bara að chilla með rautt í glasi, strákarnir að sjálfsögðu í ps3 hehe.

Ég er búin að bóka ferjuna yfir til dk.  Förum í hana 23. júní, sem er degi seinna en áætlað var út af veseni hjá icelandexpress.
Verðum svo heima í einn dag og fljúgum svo til vegas.  Við höfum mjög stuttan tíma til þess að gera okkur ready hehehe en það hefst alveg.

Kveðja
Ferðalangarnir

Monday, June 13, 2011

13. Júní

Mjög notalegur dagur í dag.

Ætluðum til Stavanger en fórum með stelpurnar á hestbak.  Fólkið sem á heima fyrir ofan Danna á hesta og bauð stelpunum að prufa.

Eftir hestana bjó Danni til pizzu sem var að sjálfsögðu geggjað góð.  Eftir pizzuna horðum við á mynd, sem við Danni sváfum yfir  hehehe :)

Núna er verið að spila og hafa það gaman.  Yndislegt að vera trítaður eins og drottning :)

Kveðja
Ferðalangarnir

Sunday, June 12, 2011

11. og 12. Júní

11. Júní
Þetta var bara kósý dagur.  Danni aðstoðaði stelpurnar að blása í laugina, svo tóku við nokkuð margar ferðir með vatn í potti og fötu hehehe, tók smá tíma en hafðist ;)
Ég fór svo út að tana smá, sólin var samt að koma og fara svo ég entist ekki lengi.  Danni grillaði handa okkur hamborgara og pulsur sem við borðuðum úti, tókum svo í nokkur spil.  Seinna um kvöldið var gítarinn tekinn upp og nokkrir slagara teknir.

12. Júní
Eftir hádegi fórum við að skoða  vinnuna hans Danna, fórum svo góðan bíltúr að skoða náttúruna.  Mikið er fallegt hérna.
Við komum heim um kvöldmataleytið og þá fór kokkurinn að elda heimagert lasagne sem var alveg sjúklega gott.  Ætla að fá uppskriftina og hætta með pakka draslið!!

Nú tekur við kósýheit.  Bara yndislegt.

Kveðja
Ferðalangarnir

Friday, June 10, 2011

9. og 10. Júní

9. Júní 
Hentumst í verslunarleiðangur, keyptum margt og mikið, þar á meðal 4 jólagjafir og eina afmælisgjöf :)  Annars fór dagurinn bara í að pakka, þrífa, slaka á og dúlla sér.

10. Júní
Ferðalagadagurinn mikli.  Vöknuðum kl 07, stelpurnar vöknuðu reyndar kl 06, enda agalega spenntar að hitta Danna sinn.
Við lögðum af stað kl 08:05 og vorum komin að ferjunni kl 11:30.  Ferjan fór reyndar ekki af stað fyrr en að ganga hálf tvö, átti að fara kl 13.
Vorum komin til Noregs 15:30 og þar tók við leiðinlegasta gatnakerfi aldarinnar með endalaust af myndavélum, tollum sem maður þurfti að borga á allt öðrum stað en tollurinn var á!!!! sem að tafði förina um hátt í klukkutíma.
Kl 23:20 keyrðum við upp að húsinu hans Danna og fengum að knúsa hann.

Á morgun verður afslöppun og enn meiri slökun.  Við erum alveg komin með nóg af bíl ;)

Kveðja
Ferðalangarnir

Wednesday, June 8, 2011

Fun city og Gautaborg 8. Júní

Snilldar dagur að baki.  Fórum með stelpurnar í fun city, þar var farið í allskonar tæki, dýrin skoðuð, farið á bak á asna og svo sólað sig ásamt því að fara í vatnsrennibrautir.  Við kíktum svo aðeins í Gekås í Ullared.  Eftir smá hlaup í búðinni fórum við í mat til Önju og Bóa í Gautaborg.

Á morgun pökkum við niður, þrífum, sólum okkur kannski smá, förum aftur í Gekås og söfnum svo krafti fyrir ferðalagið til Noregs.  Hlakka svo til að sjá litla bróður minn mússí múss.


Kveðja
Ferðalangarnir

Tuesday, June 7, 2011

Fríið góða

Ahhhhhh frí í dag, engin keyrsla, bara afslöppun.  Eini dagurinn sem var lítil sól en alveg 25 gráður úti.

Ætla að njóta mín í kláðanum.

Kveðja
Ferðalangarnir

Danmörk 6. Júní

Vöknuðum kl 8 og lögðum af stað í ferðalag.  Við tókum keyrðum til Helsingborg og tókum ferju þar og sigldum yfir til Helsingor í Danmörku, þaðan keyrðum við til köben og fórum í experimentarium, sem er safn þar sem þú mátt fikta í öllu og prufa, alveg svakalega gaman.  Við hittum svo Steina frænda hans Steina sem fór með okkur í Bakken.  Stelpurnar fóru í nokkra rússíbana og djöfluðust í öðrum tækjum, Steinarnir tveir fóru reyndar með í einn rússíbana og stelpurnar náðu að  plata frænda sinn í annað tæki.

Þetta var svakalega skemmtilegur en langur dagur.  Við komum heim kl 23, þreytt og lúin en glöð.

Kveðja
Ferðalangarnir

Fríið góða

Ahhhhh mikið er nú gott að eiga frídag frá keyrslu og veseni.... púffff
Það voru smá átök hér í nótt, 2 geitungar ryksugaðir og svo fengum við ljósa show, þrumur og eldingar og rafmagnslaust, getið ímyndað ykkur lætin með 3 dömur.

Ætla að njóta dagsins í kláða :)
p.s Steini tók niður annað geitungabú!!!!

Kveðja
Ferðalangarnir

Gautaborg ferð tvö 5. Júní

Annar dagurinn í fríi fyrir stelpurnar, en við Steini skutluðum Bóa heim, fórum svo að versla inn brauð og fleirra.  Já gleymdi að segja að í gær keyptum við sundlaug fyrir stelpurnar í garðinn, ekki amalegt.

Við vorum komin heim um 19 leytið og þá tók við eldamennska og svo bara slakað á.

Kveðja
Ferðalangarnir

Gautaborg 4. Júní

Stelpurnar fengu frí þennan dag til að sóla sig, við Steini fórum til Gautaborgar að sækja Bóa.  Hann gisti hjá okkur eina nótt.
Þetta var alveg 5 tíma ferðalag, framm og til baka, en vel þess virði.

Gaurarnir byrjuðu á því að fara í golf, á meðan tönuðum við stelpurnar.
Fólkið sem á bústaðinn kom til okkar og fjarlægðu 2 geitungabú!!!
Svo var grillað og drukkinn bjór og setið úti í ljósaskiptunum sem er eitt það heimskulegasta sem maður gerir!!! Enda er ég ein mýflugustunga, með bólgna löpp og fínerí.  Stungurnar eru 18 talsins, ég er örugglega með ofnæmi fyrir stungunum, því ég er með blöðrur og tvöfaldann ökkla.
Þetta mun ég ekki gera aftur!

Kveðja
Ferðalangarnir

Halmstad 3. Júní

Vöknuðum kl 9:30, fengum okkur í gogginn og fórum að leita af internetpung.  Við fórum til Halmstad og fundum þar þessa fínu búð sem var bara eins og Elko.  Þar keyptum við pung sem við plögguðum eins og skot fyrir Írisi því hún verður að sjálfsögðu að tala við kæró ;)

Keyptum svo betur inn í matinn og fórum svo aftur upp í bústað til að tana smá og slaka á.

Kveðja
Ferðalangarnir

Ferðin til Danmerkur 2. júní

Við lögðum af stað út á flugvöll 07:45 og fórum svo í flugvélina klukkan 09:00.  Þar urðum að bíða í klukkutíma í vélinni því gegnumlýsingartækið fyrir töskurnar var bilað!!
Lentum svo í smá ókyrrð en ekkert alveg svakalegt.  Ég ætlaði svo að kaupa sígarettur fyrir Danna bróður í tollfrjálsavarningnum, en viti menn, þeir gleymndu varningnum á Íslandi!!! Hvað er það!!

Við lentum í Köben korter í 3 að dönskum tíma. Flýttum okkur að ná í töskurnar og svo að ná í bílaleigubílinn.  Mikið rosalega fengum við flottann bíl.  Svartann 6 gíra Toyota Avensins station árgerð 2011, keyrður 478 km. Algjör snilld þessi bíll!!

Við settum garmínuna upp og ákváðum að hendast í Bilka, kaupa mat, bjór og aðrar nauðsynjar en auðvitað var lokað þar!
Keyrðum þá yfir til Malmö og borguðum hönd og fót í tollinn, ætluðum að kaupa internetpung en það var ekki opið í þeirri verslun.
Við fengum okkur þá að borða á Burger king og versluðum svo í matinn í coop forum.

Mikið var nú gott að koma í bústaðinn, leggjast niður og hlaða batterýin fyrir næsta dag.

Kveðja
Ferðalangarnir