Sunday, January 22, 2012

vika 4

Þá er vika 4 að ganga í garð.  Það hefur gengið svakalega vel hjá mér, enda er ég alveg komin í svipaðann gír og ég var í þegar ég byrjaði í danska hér áður fyrr.
3.5 kíló farin á tæpum 3 vikum, ég er svakalega glöð með það.  Heil 7 kíló farin frá því í sumar, var ekkert svakaleg alvara í þeirri megrun en eitthvað fór samt af mér ;)

Sykurstjórnunin gengur svakalega vel, ég er alltaf að testa hvað ég má og hvað ég má ekki.  Það er bara allt í blússandi gleði hér á þessum bæ.  Hlakka svo svakalega til að fá Danna til mín í apríl, svo líður að því að maður plani sumarið, jebb allt að gerast ;)

Kveðja Krissulingur

Sunday, January 15, 2012

Sunnó

Kósý dagur í dag.  Sökti mér í bókina Feigð eftir Stefán Mána, svakalega skemmtileg bók.  Í lestrarpásum hentist ég í þvottahúsið og inn í eldhús að elda.  Er núna að sinna tölvuskyldum áður en ég læði mér aftur undir sæng að lesa :)
Mataræðið hefur gengið vel í dag.  Ég er reyndar búin að ákveða að fá mér smá popp og pepsí í kvöld.  Held að það komi ekki að sök hehe.

Ætla að gera tilraun á morgun, gá hvort ég þoli burger hrökk kex.

Cya hómí

Saturday, January 14, 2012

Helgarnar

Ég verð alveg að viðurkenna það að mér þykja helgarnar mjög erfiðar.  Margt sem mig langar í sem er kannski ekki svo óhollt, en fyrir mig er það ekki hollt.  Ég er með sykursýki 2 sem var að sjálfsögðu úr sögunni áður en ég fitnaði aftur, en ég hef hemil á henni ef ég sleppi mjólkurvörum, brauði, osti, pasta og þessháttar, þarf ekki að benda á það augljósa að ég sneiði auðvitað framhjá sykri ;)  Ég fæ mér líka takmarkað af ávöxtum, en þetta er bara rétt á meðan ég skef af mér fituna, mér finnst svo mikilvægt að hafa stjórn á blóðsykrinum.  Ég kom mér í þetta !!
Ég er mikið að pæla í að byrja aftur í bodypump, það er reyndar ekki eins gaman að vera einn að vesenast þetta, en ég reyndar fór alltaf ein á sínum tíma.  Ætla að leggjast yfir þetta og hugsa málið.

Annars leggst það vel í mig að byrja aftur í danska, hakka til að losa mig við fitupúkann ;)


Ég vil! ég get! ég skal!

Krissa feitabolla mætt á svæðið


Jæja þá hefst baráttan aftur.  Ég var á danska fyrir nokkrum árum og missti 35 kíló.  Það hafa nokkuð mörg kíló læðst á mig aftur og nú er nóg komið.  Ég bloggaði þegar ég var í danska á þeim tíma og ákvað að gera það líka núna.


Ég er mjög bjartsýn á að þetta takist hjá mér, alveg sorglegt að blása aftur út, ég sem sagðist aldrei ætla að láta þetta gerast og svo læddust kílóinn á mig á meðan ég lokaði augunum.  Hingað og ekki lengra, nú hefst gamanið.