Ég verð alveg að viðurkenna það að mér þykja helgarnar mjög erfiðar. Margt sem mig langar í sem er kannski ekki svo óhollt, en fyrir mig er það ekki hollt. Ég er með sykursýki 2 sem var að sjálfsögðu úr sögunni áður en ég fitnaði aftur, en ég hef hemil á henni ef ég sleppi mjólkurvörum, brauði, osti, pasta og þessháttar, þarf ekki að benda á það augljósa að ég sneiði auðvitað framhjá sykri ;) Ég fæ mér líka takmarkað af ávöxtum, en þetta er bara rétt á meðan ég skef af mér fituna, mér finnst svo mikilvægt að hafa stjórn á blóðsykrinum. Ég kom mér í þetta !!
Ég er mikið að pæla í að byrja aftur í bodypump, það er reyndar ekki eins gaman að vera einn að vesenast þetta, en ég reyndar fór alltaf ein á sínum tíma. Ætla að leggjast yfir þetta og hugsa málið.
Annars leggst það vel í mig að byrja aftur í danska, hakka til að losa mig við fitupúkann ;)
Ég vil! ég get! ég skal!
gangi þér vel hjartað mitt...ég veit að þetta tekst hjá þér..þú ert svo viljasterk og dugleg..knús
ReplyDelete