Þá er ég komin til Vegas baby. Ég er búin að vera hér í 3 daga og er enn að snúa sólarhringnum við.
Ferðalagið gekk vel, en var svakalega langt. Við Steini hittum alla sem eru með okkur í húsinu á leifsstöð sem var ferlega fínt, gott að vera búin að sjá liðið og knúsa það aðeins. Við vorum samt ekki í sama flugi, þau flugu til New york en við til Boston. Vorum samt búin að mæla okkur mót á flugvellinum í Vegas og taka saman leigubíl í höllina, fyrir utan 2 sem voru lengur á leiðinni en við hin.
Klukkan 11:00 fórum við í flugvélina og vorum lent í Boston ca 16:00(12 að hádegi í Boston). Þar tók við um 6 tíma bið á flugvellinum, kl 22:00(18:00) var farið í loftið og flogið í 5 og hálfann tíma, við græddum hálftíma út af meðvindi. Þá er klukkan orðin 4:30 á Íslandi o þeir voru en bara 21:30 í Vegas.
Þegar við komum í húsið tókum við göngutúr til þess að finna matvörubúð og svo tók við biðin endalausa eftir strákunum tveim sem voru ókomnir. Þeirra flug seinkaði svo þeir voru ekki komnir fyrr en rúmlega 2 um nóttina og þá er klukkan orðin 9 heima og við búin að vaka í rúman sólahring. Mikið var nú gott að skríða upp í king size rúmið og sofna
Kveðja
Krissa
No comments:
Post a Comment