Wednesday, June 22, 2011

18, 19, 20, 21 og 22

Við erum ekki búin að gera neitt sérstak þessa dagana, bara chilla og njóta lífsins.  Danni er aðeins búinn að vera að vinna, en gefur sér að sjálfsögðu tíma fyrir litlu frænkur sínar :)  Hann sótti vin sinn á flugvöllinn í gær, hann ætlar að vera hjá honum í mánuð og vinna hjá honum.  Þegar þeir komu af flugvellinum fóru þeir með stelpurnar að veiða, á meðan marineraði ég kjötið, gerði heitt grænmeti og ferskt og svo var grillað.
Ég fékk góða dóma frá kokkunum tveim, sem er sko alls ekki amalegt að fá :)

Á morgun, eða réttara sagt í nótt hefjum við ferðalagið heim.
Vöknum kl 2:30 og fáum okkur í gogginn.  Kveðjum lillann minn og yndislegu Susanne og keyrum svo í 3 og hálfan tíma til Kristiansand og tökum ferjuna til Hirtshals sem er í Danmörku og keyrum þaðan í ca 5 tíma til Köben, skilum bílnum og förum í flug.

Þegar heim er komið fáum við einn dag til að arensera öllu fyrir vegas og svo erum við farin aftur um morgunin þaðnn 25. júní.

Kveðja
Ferðalangarnir

No comments:

Post a Comment