Ahhhhhh frí í dag, engin keyrsla, bara afslöppun. Eini dagurinn sem var lítil sól en alveg 25 gráður úti.
Ætla að njóta mín í kláðanum.
Kveðja
Ferðalangarnir
Tuesday, June 7, 2011
Danmörk 6. Júní
Vöknuðum kl 8 og lögðum af stað í ferðalag. Við tókum keyrðum til Helsingborg og tókum ferju þar og sigldum yfir til Helsingor í Danmörku, þaðan keyrðum við til köben og fórum í experimentarium, sem er safn þar sem þú mátt fikta í öllu og prufa, alveg svakalega gaman. Við hittum svo Steina frænda hans Steina sem fór með okkur í Bakken. Stelpurnar fóru í nokkra rússíbana og djöfluðust í öðrum tækjum, Steinarnir tveir fóru reyndar með í einn rússíbana og stelpurnar náðu að plata frænda sinn í annað tæki.
Þetta var svakalega skemmtilegur en langur dagur. Við komum heim kl 23, þreytt og lúin en glöð.
Kveðja
Ferðalangarnir
Þetta var svakalega skemmtilegur en langur dagur. Við komum heim kl 23, þreytt og lúin en glöð.
Kveðja
Ferðalangarnir
Fríið góða
Ahhhhh mikið er nú gott að eiga frídag frá keyrslu og veseni.... púffff
Það voru smá átök hér í nótt, 2 geitungar ryksugaðir og svo fengum við ljósa show, þrumur og eldingar og rafmagnslaust, getið ímyndað ykkur lætin með 3 dömur.
Ætla að njóta dagsins í kláða :)
p.s Steini tók niður annað geitungabú!!!!

Gautaborg ferð tvö 5. Júní
Annar dagurinn í fríi fyrir stelpurnar, en við Steini skutluðum Bóa heim, fórum svo að versla inn brauð og fleirra. Já gleymdi að segja að í gær keyptum við sundlaug fyrir stelpurnar í garðinn, ekki amalegt.
Við vorum komin heim um 19 leytið og þá tók við eldamennska og svo bara slakað á.
Kveðja
Ferðalangarnir
Við vorum komin heim um 19 leytið og þá tók við eldamennska og svo bara slakað á.
Kveðja
Ferðalangarnir
Gautaborg 4. Júní
Stelpurnar fengu frí þennan dag til að sóla sig, við Steini fórum til Gautaborgar að sækja Bóa. Hann gisti hjá okkur eina nótt.
Þetta var alveg 5 tíma ferðalag, framm og til baka, en vel þess virði.
Gaurarnir byrjuðu á því að fara í golf, á meðan tönuðum við stelpurnar.
Fólkið sem á bústaðinn kom til okkar og fjarlægðu 2 geitungabú!!!
Svo var grillað og drukkinn bjór og setið úti í ljósaskiptunum sem er eitt það heimskulegasta sem maður gerir!!! Enda er ég ein mýflugustunga, með bólgna löpp og fínerí. Stungurnar eru 18 talsins, ég er örugglega með ofnæmi fyrir stungunum, því ég er með blöðrur og tvöfaldann ökkla.
Þetta mun ég ekki gera aftur!

Halmstad 3. Júní
Vöknuðum kl 9:30, fengum okkur í gogginn og fórum að leita af internetpung. Við fórum til Halmstad og fundum þar þessa fínu búð sem var bara eins og Elko. Þar keyptum við pung sem við plögguðum eins og skot fyrir Írisi því hún verður að sjálfsögðu að tala við kæró ;)
Keyptum svo betur inn í matinn og fórum svo aftur upp í bústað til að tana smá og slaka á.
Kveðja
Ferðalangarnir
Keyptum svo betur inn í matinn og fórum svo aftur upp í bústað til að tana smá og slaka á.
Kveðja
Ferðalangarnir
Ferðin til Danmerkur 2. júní
Við lögðum af stað út á flugvöll 07:45 og fórum svo í flugvélina klukkan 09:00. Þar urðum að bíða í klukkutíma í vélinni því gegnumlýsingartækið fyrir töskurnar var bilað!!
Lentum svo í smá ókyrrð en ekkert alveg svakalegt. Ég ætlaði svo að kaupa sígarettur fyrir Danna bróður í tollfrjálsavarningnum, en viti menn, þeir gleymndu varningnum á Íslandi!!! Hvað er það!!
Við lentum í Köben korter í 3 að dönskum tíma. Flýttum okkur að ná í töskurnar og svo að ná í bílaleigubílinn. Mikið rosalega fengum við flottann bíl. Svartann 6 gíra Toyota Avensins station árgerð 2011, keyrður 478 km. Algjör snilld þessi bíll!!
Við settum garmínuna upp og ákváðum að hendast í Bilka, kaupa mat, bjór og aðrar nauðsynjar en auðvitað var lokað þar!
Keyrðum þá yfir til Malmö og borguðum hönd og fót í tollinn, ætluðum að kaupa internetpung en það var ekki opið í þeirri verslun.
Við fengum okkur þá að borða á Burger king og versluðum svo í matinn í coop forum.
Mikið var nú gott að koma í bústaðinn, leggjast niður og hlaða batterýin fyrir næsta dag.

Subscribe to:
Posts (Atom)