Stelpurnar fengu frí þennan dag til að sóla sig, við Steini fórum til Gautaborgar að sækja Bóa. Hann gisti hjá okkur eina nótt.
Þetta var alveg 5 tíma ferðalag, framm og til baka, en vel þess virði.
Gaurarnir byrjuðu á því að fara í golf, á meðan tönuðum við stelpurnar.
Fólkið sem á bústaðinn kom til okkar og fjarlægðu 2 geitungabú!!!
Svo var grillað og drukkinn bjór og setið úti í ljósaskiptunum sem er eitt það heimskulegasta sem maður gerir!!! Enda er ég ein mýflugustunga, með bólgna löpp og fínerí. Stungurnar eru 18 talsins, ég er örugglega með ofnæmi fyrir stungunum, því ég er með blöðrur og tvöfaldann ökkla.
Þetta mun ég ekki gera aftur!
Kveðja
Ferðalangarnir
No comments:
Post a Comment