Tuesday, June 7, 2011

Danmörk 6. Júní

Vöknuðum kl 8 og lögðum af stað í ferðalag.  Við tókum keyrðum til Helsingborg og tókum ferju þar og sigldum yfir til Helsingor í Danmörku, þaðan keyrðum við til köben og fórum í experimentarium, sem er safn þar sem þú mátt fikta í öllu og prufa, alveg svakalega gaman.  Við hittum svo Steina frænda hans Steina sem fór með okkur í Bakken.  Stelpurnar fóru í nokkra rússíbana og djöfluðust í öðrum tækjum, Steinarnir tveir fóru reyndar með í einn rússíbana og stelpurnar náðu að  plata frænda sinn í annað tæki.

Þetta var svakalega skemmtilegur en langur dagur.  Við komum heim kl 23, þreytt og lúin en glöð.

Kveðja
Ferðalangarnir

No comments:

Post a Comment