Tuesday, June 7, 2011

Ferðin til Danmerkur 2. júní

Við lögðum af stað út á flugvöll 07:45 og fórum svo í flugvélina klukkan 09:00.  Þar urðum að bíða í klukkutíma í vélinni því gegnumlýsingartækið fyrir töskurnar var bilað!!
Lentum svo í smá ókyrrð en ekkert alveg svakalegt.  Ég ætlaði svo að kaupa sígarettur fyrir Danna bróður í tollfrjálsavarningnum, en viti menn, þeir gleymndu varningnum á Íslandi!!! Hvað er það!!

Við lentum í Köben korter í 3 að dönskum tíma. Flýttum okkur að ná í töskurnar og svo að ná í bílaleigubílinn.  Mikið rosalega fengum við flottann bíl.  Svartann 6 gíra Toyota Avensins station árgerð 2011, keyrður 478 km. Algjör snilld þessi bíll!!

Við settum garmínuna upp og ákváðum að hendast í Bilka, kaupa mat, bjór og aðrar nauðsynjar en auðvitað var lokað þar!
Keyrðum þá yfir til Malmö og borguðum hönd og fót í tollinn, ætluðum að kaupa internetpung en það var ekki opið í þeirri verslun.
Við fengum okkur þá að borða á Burger king og versluðum svo í matinn í coop forum.

Mikið var nú gott að koma í bústaðinn, leggjast niður og hlaða batterýin fyrir næsta dag.

Kveðja
Ferðalangarnir

No comments:

Post a Comment