Við erum ekki búin að gera neitt sérstak þessa dagana, bara chilla og njóta lífsins. Danni er aðeins búinn að vera að vinna, en gefur sér að sjálfsögðu tíma fyrir litlu frænkur sínar :) Hann sótti vin sinn á flugvöllinn í gær, hann ætlar að vera hjá honum í mánuð og vinna hjá honum. Þegar þeir komu af flugvellinum fóru þeir með stelpurnar að veiða, á meðan marineraði ég kjötið, gerði heitt grænmeti og ferskt og svo var grillað.
Ég fékk góða dóma frá kokkunum tveim, sem er sko alls ekki amalegt að fá :)
Á morgun, eða réttara sagt í nótt hefjum við ferðalagið heim.
Vöknum kl 2:30 og fáum okkur í gogginn. Kveðjum lillann minn og yndislegu Susanne og keyrum svo í 3 og hálfan tíma til Kristiansand og tökum ferjuna til Hirtshals sem er í Danmörku og keyrum þaðan í ca 5 tíma til Köben, skilum bílnum og förum í flug.
Þegar heim er komið fáum við einn dag til að arensera öllu fyrir vegas og svo erum við farin aftur um morgunin þaðnn 25. júní.
Kveðja
Ferðalangarnir
Wednesday, June 22, 2011
Friday, June 17, 2011
15, 16 og 17 júní.
15. júní
Við fórum aðeins í bæinn að skoða okkur um, löbbuðum "laugarveginn". Við hittum akkúrat á Sandnes hátið þar sem fullt af þroskaheftu fólki var að spila í lúðrasveit. Það var svaklega gaman að horfa á, svo svakalega brosmilt fólk, en ég get ekki sagt að lúðrasveitin hafi spilað eitthvað eyrnakonfekt hehehe, bara yndisleg.
Sóley Sif gaf betlarakonu pening, hún gat ekki hugsað sér að labba framhjá svona greyi ;)
Í kvöldmatinn fengum við okkur mexíkósku súpuna hennar mömmu sín ;) Svo bara chill.
16. júní
Við ákváðum að færa til þjóðhátíðardaginn okkar yfir á 16. þetta árið út af veðurspánni. Við fórum með stelpurnar í Kongeparken þar sem allir djöfluðust í tækjunum nema hræðslupúkinn ég.
Við tókum með nesti sem var búið til í vinnunni hans Danna, hann hringdi eitt símtal og bað um að láta búa til 7 kjúklingasamlokur fyrir sig hehehehe, ekki slæmt að vera yfirkokkur :)
Í kvöldmatin fengum við okkur afganginn af súpunni góðu, nammi namm og svo tók við spilakvöld.
17.júní
Erum ekki búin að gera neitt í dag, nema að fara í búðina að kaupa í matinn. Ætlum að chilla og hafa það kósý í dag og í kvöld, svo fer Danni að vinna í fyrramálið.
Í kvöldmatinn verður pasta, læt ykkur vita á morgun hvernig það bragðaðist :)

Tuesday, June 14, 2011
14. Júní
Annar nettur dagur. Stauluðumst frammúr upp úr hádegi, fengum okkur í gogginn og strákarni léku sér aðeins í ps3. Fórum svo að skoða stærsta moll í Noregi, versla inn í matinn og svo aftur heim.
Danni eldaði handa okkur hjört sem var alveg geggjaður jömmí jömmí. Erum bara að chilla með rautt í glasi, strákarnir að sjálfsögðu í ps3 hehe.
Ég er búin að bóka ferjuna yfir til dk. Förum í hana 23. júní, sem er degi seinna en áætlað var út af veseni hjá icelandexpress.
Verðum svo heima í einn dag og fljúgum svo til vegas. Við höfum mjög stuttan tíma til þess að gera okkur ready hehehe en það hefst alveg.

Monday, June 13, 2011
13. Júní
Mjög notalegur dagur í dag.
Ætluðum til Stavanger en fórum með stelpurnar á hestbak. Fólkið sem á heima fyrir ofan Danna á hesta og bauð stelpunum að prufa.
Eftir hestana bjó Danni til pizzu sem var að sjálfsögðu geggjað góð. Eftir pizzuna horðum við á mynd, sem við Danni sváfum yfir hehehe :)
Núna er verið að spila og hafa það gaman. Yndislegt að vera trítaður eins og drottning :)

Sunday, June 12, 2011
11. og 12. Júní
11. Júní
Þetta var bara kósý dagur. Danni aðstoðaði stelpurnar að blása í laugina, svo tóku við nokkuð margar ferðir með vatn í potti og fötu hehehe, tók smá tíma en hafðist ;)
Ég fór svo út að tana smá, sólin var samt að koma og fara svo ég entist ekki lengi. Danni grillaði handa okkur hamborgara og pulsur sem við borðuðum úti, tókum svo í nokkur spil. Seinna um kvöldið var gítarinn tekinn upp og nokkrir slagara teknir.
12. Júní
Eftir hádegi fórum við að skoða vinnuna hans Danna, fórum svo góðan bíltúr að skoða náttúruna. Mikið er fallegt hérna.
Við komum heim um kvöldmataleytið og þá fór kokkurinn að elda heimagert lasagne sem var alveg sjúklega gott. Ætla að fá uppskriftina og hætta með pakka draslið!!
Nú tekur við kósýheit. Bara yndislegt.

Friday, June 10, 2011
9. og 10. Júní
9. Júní
Hentumst í verslunarleiðangur, keyptum margt og mikið, þar á meðal 4 jólagjafir og eina afmælisgjöf :) Annars fór dagurinn bara í að pakka, þrífa, slaka á og dúlla sér.
10. Júní
Ferðalagadagurinn mikli. Vöknuðum kl 07, stelpurnar vöknuðu reyndar kl 06, enda agalega spenntar að hitta Danna sinn.
Við lögðum af stað kl 08:05 og vorum komin að ferjunni kl 11:30. Ferjan fór reyndar ekki af stað fyrr en að ganga hálf tvö, átti að fara kl 13.
Vorum komin til Noregs 15:30 og þar tók við leiðinlegasta gatnakerfi aldarinnar með endalaust af myndavélum, tollum sem maður þurfti að borga á allt öðrum stað en tollurinn var á!!!! sem að tafði förina um hátt í klukkutíma.
Kl 23:20 keyrðum við upp að húsinu hans Danna og fengum að knúsa hann.
Á morgun verður afslöppun og enn meiri slökun. Við erum alveg komin með nóg af bíl ;)
Kveðja
Ferðalangarnir
Wednesday, June 8, 2011
Fun city og Gautaborg 8. Júní
Snilldar dagur að baki. Fórum með stelpurnar í fun city, þar var farið í allskonar tæki, dýrin skoðuð, farið á bak á asna og svo sólað sig ásamt því að fara í vatnsrennibrautir. Við kíktum svo aðeins í Gekås í Ullared. Eftir smá hlaup í búðinni fórum við í mat til Önju og Bóa í Gautaborg.
Á morgun pökkum við niður, þrífum, sólum okkur kannski smá, förum aftur í Gekås og söfnum svo krafti fyrir ferðalagið til Noregs. Hlakka svo til að sjá litla bróður minn mússí múss.

Subscribe to:
Posts (Atom)