Sunday, June 12, 2011

11. og 12. Júní

11. Júní
Þetta var bara kósý dagur.  Danni aðstoðaði stelpurnar að blása í laugina, svo tóku við nokkuð margar ferðir með vatn í potti og fötu hehehe, tók smá tíma en hafðist ;)
Ég fór svo út að tana smá, sólin var samt að koma og fara svo ég entist ekki lengi.  Danni grillaði handa okkur hamborgara og pulsur sem við borðuðum úti, tókum svo í nokkur spil.  Seinna um kvöldið var gítarinn tekinn upp og nokkrir slagara teknir.

12. Júní
Eftir hádegi fórum við að skoða  vinnuna hans Danna, fórum svo góðan bíltúr að skoða náttúruna.  Mikið er fallegt hérna.
Við komum heim um kvöldmataleytið og þá fór kokkurinn að elda heimagert lasagne sem var alveg sjúklega gott.  Ætla að fá uppskriftina og hætta með pakka draslið!!

Nú tekur við kósýheit.  Bara yndislegt.

Kveðja
Ferðalangarnir

No comments:

Post a Comment