Hentumst í verslunarleiðangur, keyptum margt og mikið, þar á meðal 4 jólagjafir og eina afmælisgjöf :) Annars fór dagurinn bara í að pakka, þrífa, slaka á og dúlla sér.
10. Júní
Ferðalagadagurinn mikli. Vöknuðum kl 07, stelpurnar vöknuðu reyndar kl 06, enda agalega spenntar að hitta Danna sinn.
Við lögðum af stað kl 08:05 og vorum komin að ferjunni kl 11:30. Ferjan fór reyndar ekki af stað fyrr en að ganga hálf tvö, átti að fara kl 13.
Vorum komin til Noregs 15:30 og þar tók við leiðinlegasta gatnakerfi aldarinnar með endalaust af myndavélum, tollum sem maður þurfti að borga á allt öðrum stað en tollurinn var á!!!! sem að tafði förina um hátt í klukkutíma.
Kl 23:20 keyrðum við upp að húsinu hans Danna og fengum að knúsa hann.
Á morgun verður afslöppun og enn meiri slökun. Við erum alveg komin með nóg af bíl ;)
Kveðja
Ferðalangarnir
No comments:
Post a Comment