Snilldar dagur að baki. Fórum með stelpurnar í fun city, þar var farið í allskonar tæki, dýrin skoðuð, farið á bak á asna og svo sólað sig ásamt því að fara í vatnsrennibrautir. Við kíktum svo aðeins í Gekås í Ullared. Eftir smá hlaup í búðinni fórum við í mat til Önju og Bóa í Gautaborg.
Á morgun pökkum við niður, þrífum, sólum okkur kannski smá, förum aftur í Gekås og söfnum svo krafti fyrir ferðalagið til Noregs. Hlakka svo til að sjá litla bróður minn mússí múss.
Kveðja
Ferðalangarnir
No comments:
Post a Comment