Friday, June 17, 2011

15, 16 og 17 júní.

15. júní
Við fórum aðeins í bæinn að skoða okkur um, löbbuðum "laugarveginn".  Við hittum akkúrat á Sandnes hátið þar sem fullt af þroskaheftu fólki var að spila í lúðrasveit.  Það var svaklega gaman að horfa á, svo svakalega brosmilt fólk, en ég get ekki sagt að lúðrasveitin hafi spilað eitthvað eyrnakonfekt hehehe, bara yndisleg.
Sóley Sif gaf betlarakonu pening, hún gat ekki hugsað sér að labba framhjá svona greyi ;)

Í kvöldmatinn fengum við okkur mexíkósku súpuna hennar mömmu sín ;) Svo bara chill.

16. júní
Við ákváðum að færa til þjóðhátíðardaginn okkar yfir á 16. þetta árið út af veðurspánni.  Við fórum með stelpurnar í Kongeparken þar sem allir djöfluðust í tækjunum nema hræðslupúkinn ég.
Við tókum með nesti sem var búið til í vinnunni hans Danna, hann hringdi eitt símtal og bað um að láta búa til 7 kjúklingasamlokur fyrir sig hehehehe, ekki slæmt að vera yfirkokkur :)

Í kvöldmatin fengum við okkur afganginn af súpunni góðu, nammi namm og svo tók við spilakvöld.

17.júní
Erum ekki búin að gera neitt í dag, nema að fara í búðina að kaupa í matinn.  Ætlum að chilla og hafa það kósý í dag og í kvöld, svo fer Danni að vinna í fyrramálið.

Í kvöldmatinn verður pasta, læt ykkur vita á morgun hvernig það bragðaðist :)

Kveðja
Ferðalangarnir

1 comment:

  1. bara yndislegt :) ég er farin að sakan ykkar meira en ykkur grunar

    ReplyDelete